OKKAR Framtíð

Fjárhagsleg framtíð barna

Fjögur bótasvið OKKAR Framtíðar

  1. Örorkubætur: Mikilvægasti bótaþátturinn er réttur til skattfrjálsra örorkubóta ef sjúkdómur eða slys hefur haft í för með sér varanlega skerðingu á líkamlegri getu vátryggðs.

  2. Dagpeningar vegna sjúkrahúsdvalar: Tryggingunni er ætlað að aðstoða fjölskyldur þegar barn þarf að dvelja á sjúkrahúsi til lengri eða skemmri tíma. Tryggingin greiðir að hámarki 4.800 kr. á dag í allt að eitt ár eða 1.752.000 krónur yfir árið.

  3. Umönnunarbætur til foreldra: Tryggingin greiðir bætur til foreldra eða forsjáraðila vegna sjúkdóms eða slyss barnsins. Umönnunarbætur geta numið 10% af vátryggingarfjárhæð í allt að tíu ár og geta því numið að hámarki tólf milljónum króna alls sem jafngildir 100 þúsund krónum á mánuði.

  4. Dánarbætur: Tryggingin greiðir bætur ef hinn tryggði andast á gildistíma tryggingarinnar. Vátryggingarfjárhæð er 600 þúsund krónur.

 Fyrir efin í lífinu

Því miður eru erfiðu „efin“ í lífinu alltof mörg og því miður er vonlaust að tryggja sig fyrir flestum þeirra. Við getum t.d. ekki tryggt börnin okkar þannig að þau eigi það ekki á hættu að veikjast eða lenda í slysum sem sett geta mark sitt á líf þeirra allra ævi. Við getum hins vegar treyst undirstöðurnar í fjárhagslegu sjálfstæði þeirra á fullorðinsárum ef óvænta vágesti ber að dyrum í æsku. 

Þeir sem búa við fulla örorku frá æsku- eða unglingsárum og hafa því ekki „launareynslu“ af vinnumarkaðnum standa utan lífeyriskerfisins og njóta einungis bóta Tryggingastofnunar. Öllum er ljóst að af þeim getur enginn komið undir sig fótunum og lifað sæmilegu lífi. Aðstandendur verða að hlaupa undir bagga en ekkert okkar veit hve lengi við getum verið til staðar og rétt börnum okkar hjálparhönd.

OKKAR Framtíð er framtíðartrygging barna og ungmenna. Hana er hægt að taka frá 3ja mánaða aldri barnsins og hún gildir til 26 ára aldurs. Tryggingin greiðir skattfrjálsar örorkubætur í formi eingreiðslu um leið og varanlegt örorkumat liggur fyrir. Eingreiðslan ber vexti til 18 ára aldurs og henni má skipta upp í mánaðarlegar greiðslur til 60 ára aldurs. Með OKKAR sparnaði, sem laus er til útborgunar við átján ára aldur, má treysta fjárhagslegar undirstöður barnanna okkar enn frekar.

Skilmálar

Nánari upplýsingar:

fara efst á síðu